Ráðstefna ASÍ um jafnréttismál - eru verðmætin í jafnréttinu falin?

Jafnréttisnefnd ASÍ býður til ráðstefnu 12. nóvember 2015 kl. 10:00 – 16:00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Yfirskrift ráðstefnunnar er Vinnumarkaðurinn og jafnréttisbaráttan - eru verðmætin í jafnréttinu falin? Í ár eru 40 ár frá því að íslenskar konur lögðu niður störf þann 24. október til að sýna fram á mikilvægi   vinnuframlags þeirra og krefjast bættra kjara. 60 ár eru frá því að fyrsta jafnlaunaráðstefna ASÍ var haldin, þar sem fjallað var um kjör kvenna. Í ár fagna íslenskar konur 100 ára afmæli kosningaréttar og á næsta ári fagnar Alþýðusamband Íslands 100 ára afmæli sínu. Skráning fer fram hér fyrir 9. nóvember. Dagskrá 10:00     Setning Signý Jóhannesdóttir, formaður jafnréttisnefndar ASÍ Ávarp Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Fæðingarorlof – árangur í glatkistuna? Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við HÍ Árekstrar vinnu og heimilis í hruni og endurreisn Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi við HÍ Rödd úr raunveruleikanum Valgeir Sveinn Eyþórsson, Afl Starfsgreinafélag Kynbundið náms- og starfsval Sif Einarsdóttir, prófessor við HÍ 12:00     Hádegisverður 12:45     Sjálfmynd stelpna Kristín Tómasdóttir, rithöfundur Launajafnrétti og jafnlaunastaðall Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ Er jafnrétti í augsýn? Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR Staða kynjanna í Fjallabyggð fyrir og eftir Héðinsfjarðargöng Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, félagsfræðingur við HA 14:30     Kaffihlé 14:45     Er verkalýðshreyfingin í raun fyrir ungt fólk á vinnumarkaði? Hrönn Jónsdóttir, Grafía, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum Á fólk að segja sig til sveitar? Erna Indriðadóttir, ritstjóri Lifðu núna Snjókorn Valgerður Bjarnadóttir, hugsjónakona Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA