Ráðstefna um starfsendurhæfingu

Dagana 5.-7. september næstkomandi verður haldin áhugaverð ráðstefna á Hilton Reykjavík Nordica um starfsendurhæfingu og hvernig greiða megi leið fólks inn á vinnumarkaðinn á ný eftir veikindi eða slys. Tekin verða dæmi um vel heppnuð verkefni þar sem fólk hefur getað hafið störf fyrr en ella vegna góðs samstarfs fyrirtækja og þeirra sem sinna starfsendurhæfingu. Þá verður rýnt í áhugaverðar rannsóknir en yfirskrift ráðsefnunnar er Vinnum saman. Aðalfyrirlesarar eru Dr. Tom Burns, heiðursprófessor í samfélagsgeðlækningum við Oxford háskóla, Dr. Reuben Escorpizo, prófessor við háskólann í Vermont og Dr. William Shaw sem er yfirmaður rannsókna við Liberty Mutual Research Institute for Safety í Massachusetts. Ráðstefnan fer fram á ensku, en þátttakendur og fyrirlesarar koma frá Norðurlöndunum, Bandaríkjunum og Bretlandi. Ráðstefnan er m.a. ætluð þeim sem vinna við starfsendurhæfingu innan tryggingar- og heilbrigðisgeirans, ráðgjöfum, atvinnurekendum, starfsmönnum stéttarfélaga og sérfræðingum. Dagskrá ráðstefnunnar (PDF) Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu ráðstefnunnar. Skráning á ráðstefnuna fer fram á vef VIRK. Ráðstefnan er skipulögð af VIRK Starfsendurhæfingarsjóði í samvinnu við Linköping háskóla í Svíþjóð, AIR- National Advisory Unit on Occupational Rehabilitation í Rauland í Noregi, Marselisborg Centret í Danmörku og Finnish Institute of Occupational Health í Finnlandi.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA