Samkomulag um meginlínur kjarasamnings

Formaður Starfsgreinasambandsins, fyrir hönd samninganefndar SGS, skrifaði undir samkomulag um meginlínur nýs kjarasamnings ásamt formönnum Eflingar, VR, LÍV, VLFA, VLFG og Framsýnar, sem gengið var frá hjá ríkissáttasemjara upp úr klukkan eitt síðastliðna nótt. Í dag verður síðan unnin áframhaldandi vinna við gerð kjarasamningsins með það fyrir augum að ganga frá honum sem allra fyrst. Samninganefnd Starfsgreinasambands er öll komin til fundar hjá ríkissáttasemjara og mun sitja þar við störf næstu daga.
  1. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  2. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  3. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  4. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta