Samningur SGS við ríkið kominn á vefinn

Kjarasamningur Starfsgreinasambandsins og ríkisins vegna starfsfólks hjá ríkisstofnunum er nú aðgengilegur á rafrænu formi. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Prentuð útgáfa samningsins verður tilbúin á næstu dögum. Hafi félagsmenn hug á að nálgast eintak af umræddum samningi er þeim bent á að hafa samband við sitt stéttarfélag eða heimsækja skrifstofu þess. Eins og áður má nálgast alla samninga sambandsins á rafrænu formi hér á vefsíðunni undir „Kaup & kjör“. Samning SGS við ríkið í heild sinni má nálgast hér.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag