Samningur við ríkið undirritaður

Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag (7. október 2015), vegna starfsfólks aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hjá ríkisstofnunum. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um á almennum markaði í vor og gildir hann frá 1. maí síðastliðnum. Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann 1. júní árið 2016 hækka laun um 5,5%, að lágmarki 15.000 krónur auk breytinga á launatöflu. Ári síðar, eða 1. júní 2017,  hækka laun um 4,5% og 1. júní 2018 hækka laun um 3%. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2019 og kemur þá til sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2019 uppá 45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk í hlutastarfi.  Lágmarkslaun eru hækkuð til samræmis við það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði og verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun. Framlag í þróunar- og símenntunarsjóði verður hækkað í 0,82% auk þess sem aukið framlag verður sett í stofnanasamninga samkvæmt sérstakri bókun. Um samninginn:
  • Kjarasamningurinn felur í sér verulegar launahækkanir við upphaf samnings þar sem að launataxtar hækka um 25.000 kr. eða að meðaltali um 9,78%.
  • Launataxtar hækka um 15.000 kr. þann 1. júní 2016 auk leiðréttingar á launatöflu sem jafngildir 5,9% hækkun að meðaltali.
  • Þann 1. júní 2017 hækka launataxtar um 4,5%
  • Þann 1. júní 2018 hækka laun um 3%.
  • Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 45.000, miðað við þá sem eru í fullu starfi 1. janúar 2019 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.
  • Lagðar verða til 30 milljónir árlega árin 2016 – 2018 til þess að samræma stofnanasamninga þar sem horft verður til þess að leiðrétta sérstaklega þá hópa sem eru með lægri röðun í launatöflu en aðrir sambærilegir hópar.
  • Framlag í fræðslusjóð eykst úr 0,67% í 0,82% sem er mjög jákvætt skref til þess að efla félagsmenn enn frekar í starfi.
  • Launataxtar fyrir tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingum hækka um tæplega 34% á samningstímanum.
  • Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. frá 1. júní 2018.
  • Orlofsuppbót hækkar um 21,5% á samningstímanum og fer í 42.000 kr. við upphaf samnings en verður komin í 48.000 kr. í lok samnings.
  • Desemberuppbót hækkar um tæplega 21% og fer í 78.000 kr. á árinu 2015 en 89.000 í lok samningstíma.
  Samninginn í heild sinni má nálgast hér. Samningurinn verður á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins.  Félög sem veitt hafa Starfsgreinsambandinu umboð munu halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu. SGS hvetur alla félagsmenn á kjörskrá til að nýta atkvæðisrétt sinn og greiða atkvæði með samningnum.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag