SGS fagnar 15 ára afmæli

Þann 13. október fagnar Starfsgreinasamband Íslands fimmtán ára afmæli sínu. Blásið verður til málþings á Hotel Natura klukkan eitt á afmælisdaginn, þar verður litið yfir farinn veg og spáð í framtíðina. Um kvöldið munu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS ásamt gestum fagna með hátíðarkvöldverði. Fimmta reglulega þing SGS hefst svo þann 14. október og stendur í tvo daga. Á dagskrá verða hefðbundin þingstörf. Dagskrá málþingsins er sem hér segir:
  1. Fortíðin - Saga og skipulag, Starfsgreinasambandið og forverar þess: Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur og höfundur sögu ASÍ
  1. Nútíminn - Nútímaleg risaeðla: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir  fréttakona
  1. Söngur: Hallveig Rúnarsdóttir og Hrönn Þráinsdóttir
Kaffihlé
  1. Framtíðin – Hver verður framtíð ungs fólks í verkalýðs- og stéttarfélagsmálum: Eiríkur Þór Theódórsson og Skúli Guðmundsson, fulltrúar ASÍ – UNG
  1. Pallborðsumræður: með þátttöku fyrirlesara og Kristjáns Bragasonar framkvæmdastjóra NU-HRCT
Fundarstjóri: Drífa Snædal
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag