SGS gagnrýnir breyttar forsendur kjarasamninga

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á formannafundi SGS á Egilsstöðum föstudaginn 11. september 2015. Formannafundur SGS haldinn á Egilsstöðum 11. september 2015 telur brýnt  að endurmeta forsendur þeirra kjarasamninga á almenna markaðnum sem undirritaðir voru í maí síðastliðnum í ljósi niðurstöðu gerðardóms. Dómurinn setur ný viðmið á vinnumarkaði sem eru í verulegu ósamræmi við þau viðmið sem samninganefnd Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagið sömdu um. Í kjarasamningunum frá því í maí var það almenn og víðtæk krafa í samfélaginu að hækka bæri lægstu laun og lyft var grettistaki í þá átt við undirritun samninganna. Niðurstaða gerðadómsins er hins vegar sú að hækka ákveðna hópa háskólamenntaðs fólks hlutfallslega meira en gert var í almennu samningunum. Ekki er tekið tillit til samstöðu um hækkun lægstu launa né skattabreytinga í gerðardómnum. Það eru gríðarleg vonbrigði og lýsir algerum dómgreindabresti að gerðadómur hafi litið algjörlega framhjá þeim leiðbeiningum sem dómurinn átti að vinna eftir til að stuðla að stöðugleika. Gerðir voru samningar á almennum markaði til þriggja og hálfs árs í maí en ef forsendur bresta eru þeir lausir í febrúar 2016 verði ekkert að gert fyrir þann tíma.
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag