Slitnað upp úr kjaraviðræðum milli Starfsgreinasambands Íslands og sveitarfélaganna

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna sleit á sjöunda tímanum í kvöld viðræðum sínum við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Samningar hafa verið lausir frá 1.desember 2010 og hafa viðræður um nýjan kjarasamning staðið yfir með hléum frá áramótum. Deilur standa milli aðila um launatöflu sem sveitarfélögin hafa boðið og leggja ofuráherslu á að ná fram. Fjölmennasti hópur starfsmanna innan  SGS- félaganna sem starfar hjá sveitarféögunum  starfa í leik- og grunnskólum. Nýja launataflan væri að færa þessum hópum starfsmanna kr. 20.158 á sama samningstíma  og launafólk á almennum markaði  væri að fá kr. 34.000 (31. jan.  2014). Sveitarfélögin leggja áherslu á að semja til loka september 2014 og þá væru þessir starfsmenn búnir  að fá tæpar 27 þúsund kr. í hækkun. Þá vantar um 84 þúsund krónur á  ársgrundvelli upp  á laun þessara starfsmanna,  miðað við þær launahækkanir sem almennt hefur verið samið um í samfélaginu. Samninganefndir  SGS og Flóans hafa algjörlega hafnað þessari framsetningu  gera þá kröfu að Samband íslenskra sveitarfélaga fari sömu leið og Reykjavíkurborg hefur gert gagnvart sínum viðsemjendum. Signý Jóhannesdóttir Sviðstjóri opinberra starfsmanna innan SGS
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag