Þetta er ekki réttlátt!

ASÍ hefur að undanförnu birt auglýsingar þar sem bent er á ýmis atriði fjárlagafrumvarpsins þar sem farið er gróflega gegn hagsmunum launafólks. Innihjald auglýsingarinnar má sjá að neðan, en auglýsinguna sjálfa er að finna hér. Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi.Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana. Hækkun á matvælum Hækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum. Heilbrigðismál Með meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Menntamál Fyrirheit um eflingu starfs-, verk- og tæknimenntunar eru svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla formlega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega. Starfsendurhæfing Niðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Atvinnuleysistryggingar Stytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnulausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu. Húsnæðismál Ekki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta miklum vanda í húsnæðismálum. Jafnræði í lífeyrismálum Skert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyrissjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ. Skattalækkanir Ríkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA