Þriðja þing ASÍ-UNG vel heppnað

Þriðja þing ASÍ-UNG var haldið 12. september sl. undir yfirskriftinni „Samfélag fyrir alla ... líka unga fólkið“. Þingið sóttu 36 þing- og aukafulltrúar og þar af komu 15 frá félögum innan Starfsgreinasambandsins. Á þinginu fjölluðu Henný Hinz og Ari Eldjárn m.a. um tekjuskiptingu í samfélaginu og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Mikil áhersla var lögð á málefnavinnu á þinginu og skilaði sú vinna sér m.a. í ályktunum um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs, húsnæðismál og svarta atvinnustarfsemi og kennitöluflakk. Ályktanirnar í heild sinni má nálgast á vef ASÍ. Ný níu manna stjórn ASÍ-UNG var kjörin á þinginu og koma þrír stjórnarmannanna frá félögum innan SGS. Nýja stjórn ASÍ-UNG skipa eftirtaldir: Unnur Rán Reynisdóttir (Félag hársnyrtisveina); Freydís Ösp Leifsdóttir (Báran); Linda Rós Reynisdóttir (VR); Eiríkur Þór Theódórsson (StéttVest); Ingólfur Björgvin Jónsson (Efling); Friðrik Guðni Óskarsson (FIT); Guðni Gunnarsson formaður (VM); Einar Magnús Einarsson (Framsýn) og Eva Hrund Aðalbjarnadóttir (Mjólkurfræðingafélagi Íslands).   [caption id="attachment_8076" align="aligncenter" width="641"]Ný stjórn ASÍ-UNG: Unnur Rán Reynisdóttir (Félag hársnyrtisveina); Freydís Ösp Leifsdóttir (Báran); Linda Rós Reynisdóttir (VR); Eiríkur Þór Theódórsson (StéttVest); Ingólfur Björgvin Jónsson (Efling); Friðrik Guðni Óskarsson (FIT); Guðni Gunnarsson formaður (VM); Einar Magnús Einarsson (Framsýn) og Eva Hrund Aðalbjarnadóttir (Mjólkurfræðingafélagi Íslands). Ný stjórn ASÍ-UNG: Unnur Rán Reynisdóttir (Félag hársnyrtisveina); Freydís Ösp Leifsdóttir (Báran); Linda Rós Reynisdóttir (VR); Eiríkur Þór Theódórsson (StéttVest); Ingólfur Björgvin Jónsson (Efling); Friðrik Guðni Óskarsson (FIT); Guðni Gunnarsson formaður (VM); Einar Magnús Einarsson (Framsýn) og Eva Hrund Aðalbjarnadóttir (Mjólkurfræðingafélagi Íslands).[/caption]
  1. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  2. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA
  3. 3/20/2024 11:48:06 AM Kjarasamningur SGS og SA samþykktur með miklum meirihluta
  4. 3/13/2024 11:10:50 AM Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SGS og SA hefst í dag