Verk Vest mótmælir harðri og óvæginni aðför að launafólki

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfjarða fundaði á Þingeyri í gær þar sem harðri og óvæginni aðför að launafólki var m.a. mótmælt. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt: Hin harða og óvægna aðför að launafólki sem birtist í fjárlagfrumvarpi 2015 á sér vart hliðstæðu hin síðari ár. Slík aðför er hvatning til launafólks inn í komandi kjaraviðræður um að láta sverfa til stáls. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur stjórnvöld til að koma í veg fyrir að óbreytt fjárlagafrumvarp nái fram að ganga um leið og stjórn félagsins bendir á nokkur alvarlegustu svikin sem boðuð eru í frumvarpinu. • Lífeyrismál Það eru alvarleg svik við launafólk að ætla skerða framtíðarlífeyrissparnað um allt að 4,5% með því að fella niður framlag til jöfnunar örorkubyrgða hjá almennu lífeyrissjóðunum sem var ein megin forsenda kjarasamninga árið 2005. • Starfsendurhæfing Það eru alvarleg svik að fella niður framlag ríkisins til starfsendurhæfingar. Afleiðingin mun þýða að skjólstæðingar ríkisins munu ekki fá þjónustu hjá VIRK starfsendurhæfingasjóði. • Menntun Það eru alvarleg svik við launafólk að skerða framlög til fullorðinsfræðslu og þannig takmarka möguleika til starfsnáms. Framlög til fullorðinsfræðslu var hluti af yfirlýsingu ríkisstjórnar með kjarasamningum 2011. • Matarskattur Hækkun matarskatts er alvarleg aðför að framfærslu launafólk. Hjá lágtekjufólki mun allt að 21% ráðstöfunatekna fara til matarinnkaupa. Slíkt er ólíðandi. • Atvinnuleysisbætur Algjört virðingarleysi gagnvart stöðu atvinnulausra birtist í skerðingu atvinnuleysisbóta með styttingu bótatímabils og takmörkun á framlögum til vinnumarkaðsúrræða fyrir atvinnulausa. • Heilbrigðismál Vanda heilbrigðiskerfisins er vellt yfir á almenning með aukinni þátttöku í lyfjakostnaði, hækkun komugjalda langt umfram verðlagsþróun og stóraukinni þátttöku í sérfræðiþjónustu. Á sama tíma og almennu launafólki er ætlað að taka á sig niðurskurð og auknar álögur í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2015, er launfólki jafnframt ætlað að standa undir stöðugleika á íslenskum vinnumarkaði og bættu efnahagslífi. Má með sanni segja að verði óbreytt fjárlagafrumvarp að veruleika hafi ríkisstjórnin sjálf gefið út ávísun á ófrið á vinnumarkaði. Félagsmenn Verk Vest þurfa því að undirbúa sig fyrir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hefur um áratuga skeið. Þingeyri 7. október 2014 Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA