Viðræðunefnd SGS falið að meta hvort vísa eigi kjaradeilunni

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins fundaði síðastliðinn fimmtudag, 14. febrúar,  um stöðuna í kjaraviðræðum og næstu skref. Á fundinum var samþykkt einróma umboð til handa viðræðunefnd SGS þess efnis að vísa kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara á næstu dögum ef nefndin telur ástæðu til. Það eru væntingar um að fram komi hugmyndir eða tillögur í framhaldi af viðræðum forystu ASÍ og stjórnvalda á morgunn, þriðjudag. Viðræðunefnd SGS hefur verið boðuð til fundar síðdegis þann dag.
  1. 4/30/2024 2:50:44 PM Fjölbreytt dagskrá um land allt á baráttudegi verkalýðsins
  2. 4/29/2024 3:05:43 PM Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2024
  3. 4/16/2024 2:46:16 PM Nýjar reiknivélar
  4. 3/22/2024 2:49:34 PM Nýir kauptaxtar SGS og SA