24. október 2019
Ávarp félags- og barnamálaráðherra á þingi SGS
Ég, ásamt þeirri ríkisstjórn sem nú situr, hef lagt ríka áherslu á samvinnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og ekki síst þess vegna er það mér sönn ánægja að fá tækifæri til að ávarpa ykkur hér í dag á ársþingi Starfsgreinasambandsins.
24. október 2019
7. þing SGS sett - ræða formanns
Velkomin á 7. þing Starfsgreinasambands Íslands, sem að þessu sinni er haldið í Reykjavík, hérna á Hotel Natura. Dagskrá þessa tveggja daga þings er metnaðarfull og ég er þess fullviss að þingið verður starfsamt, rétt eins og fyrri þing.
22. október 2019
Ný heimasíða SGS í loftið
Nýr og endurbættur vefur Starfsgreinasambands Íslands var formlega opnaður á þingi sambandsins sem hófst í dag. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vefnum sem miða að því að  bæta þjónustu við alla þá sem eiga erindi við SGS. Lögð er áhersla á stílhreint útlit, einfalda uppbyggingu og síðast en ekki síst að upplýsingar á nýjum vef séu sem aðgengilegastar og settar fram á greinargóðan hátt.
22. október 2019
7. þing Starfsgreinasambands Íslands
7. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett á Hótel Reykjavík Natura í dag, 24. október, og mun standa yfir í tvo daga. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. Á þingið í ár mæta alls 140 fulltrúar frá 19 aðildarfélögum sambandsins.
15. október 2019
Ályktun frá stjórnum og trúnaðarmönnum stéttarfélaganna í Suðurkjördæmi
Stjórnir og trúnaðarmenn stéttarfélaganna í Suðurkjördæmi furða sig á vinnubrögðum sveitarfélaganna þegar kemur að kjarasamningsgerð fyrir þá sem starfa á lægstu töxtunum. Vinnubrögð samninganefndar sveitarfélaganna einkennast af virðingarleysi og hroka gagnvart félagsmönnum stéttarfélaganna. Þetta vekur upp spurningar um hvort sveitarstjórnarmenn hafi veitt samninganefnd sveitarfélaganna umboð ti…