20. maí 2020
Eldri kjarasamningar og kauptaxtar aðgengilegir á vefnum
Eldri kjarasamninga Starfsgreinasambandsins við helstu samningsaðila má nú nálgast á vefsíðu Starfsgreinasambandsins, allt aftur til ársins 2011. Þá eru kauptaxtar sambandsins við SA, ríkið og sveitarfélögin nú jafnframt aðgengilegir aftur um nokkur ár.
11. maí 2020
Ályktun frá fundi formanna SGS
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, 8. maí 2020. Skorar á ríkið, Samband Íslenskra sveitarfélaga og aðra atvinnurekendur að ganga þegar til samninga við þau félög sem ósamið er við. Það er með öllu óásættanlegt að launafólk sé samningslaust mánuðum saman og ólíðandi að ekki sé gengið að réttmætum kröfum né staðið við fyrri yfirlýsingar og fyrirheit.
29. apríl 2020
Launahækkanir hjá ríki og sveitarfélögum
Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn á að laun starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum hækkuðu samkvæmt kjarasamningum þann 1. apríl síðastliðinn. Hjá starfsfólki ríkisins hækkuðu laun um 24.000 kr. fyrir launaflokka 1-17 og um 18.000 kr. fyrir hærri launaflokka. Hjá starfsfólki sveitarfélaga hækkuðu mánaðarlaun um 24.000 kr.
29. apríl 2020
Launahækkanir á almennum vinnumarkaði
Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn á að laun þeirra sem starfa á taxtalaunum á almennum vinnumarkaði, samkvæmt kjarasamningum sambandsins við Samtök atvinnulífsins, hækkuðu um 24.000 kr. þann 1. apríl síðastliðinn. Almenn launahækkun til þeirra sem ekki eru á taxtalaunum hækkuðu um 18.000 kr. frá sama tíma. Aðrir launaliðir sem kveðið er á um í kjarasamningi, s.s. bónusar í fiskvinnslu, hækkuðu um 2,5%.
27. apríl 2020
Dagskrá 1. maí með öðru sniði í ár
Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugðist með útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á RÚV (kl. 19:40).