11. apríl 2018
Fræðslu- og samráðsdagur bílstjóra og tækjastjórnenda
Starfsgreinasambandið stendur fyrir fræðslu- og samráðsdegi fyrir bílstjóra og tækjastjórnendur þann 18. apríl næstkomandi á Hotel Natura í Reykjavík. Tilgangurinn með viðburðinum er að trúnaðarmenn eða aðrir fulltrúar greinarinnar komi saman til að fjalla um kjör, aðbúnað og aðstæður sínar í starfi. Nú þegar hafa tæplega 30 manns skráð sig en ennþá eru laus pláss. Þeir sem eru áhugasamir eru vins…
4. apríl 2018
Bæklingur um áreitni á þremur tungumálum
Nýverið kom út bæklingur á íslensku, ensku og pólsku þar sem farið er yfir rétt starfsfólks þegar kemur að kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Að bæklingnum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Íslensk útgáfa bæklingsins var fyrst gefin út á alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2016. Hann hefur nú verið endurútgefinn auk þess sem hann hefur verið …
28. mars 2018
Ertu að vinna um páskana?
Starfsgreinasambandið vill minna á að öll yfirvinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi sem 1.375% af mánaðarlaunum án vaktaálags. Þetta gildir ekki um reglubundna vinnu, þar sem vetrarfrí er veitt samkvæmt sérstökum samningum vegna vinnu á umræddum dögum. Til stórhátíðardaga telst bæði föstudagurinn langi (30. mars) og páskadagur (1. apríl). Hvað varðar hvíldartíma þá á starfsmaður rétt á…
22. mars 2018
Rúmlega 80% atvinnuþátttaka í febrúar
Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 198.300 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í febrúar 2018, sem jafngildir 80,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.500 starfandi og 4.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,4%. Samanburður mælinga fyrir febrúar 2017 og 2018 sýnir a…
14. mars 2018
Formannafundur SGS
Í gær, 13. mars, hélt Starfsgreinasambandið formannafund og var hann að þessu sinni haldinn í höfuðstöðvum sambandsins í Reykjavík. Til fundarins voru boðaðir formenn allra aðildarfélaga sambandsins. Mæting var góð, en alls mættu 17 af 19 formönnum á fundinn. Á dagskrá fundarins voru eftir mál:
  1. Kynning á nýju persónuverndarlögum
  2. Kynning á drögum að kjarasamningskafla um stjórnkerfi lífeyriss…