19. mars 2014
Nýr kjarasamningur við Bændasamtök Íslands vegna starfsfólks í landbúnaði
Þann 18. mars 2014 var undirritaður nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk sem vinnur almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Auk þess falla ráðskonur/matráðar á bændabýlum undir samninginn. Starfsmenn, sem starfa við ferðaþjónustu í smærri stíl geta einnig fallið undir gildissvið samningsins enda sé það samþykkt af hálfu viðkomandi stéttarfélags. Helstu atriði hins nýja samnings er að byrjunarlaun er…
18. mars 2014
Breytingar á framlagi í starfsmenntasjóð
Með kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands, vegna aðildarfélaga, sem gildir frá 1. janúar 2014, var samið um hækkun á greiðslu atvinnurekenda í starfsmenntasjóði. Frá 1. janúar 2014 greiða atvinnurekendur 0,3% í starfsmenntasjóð og renna geiðslur til Landsmenntar external link icon (fræðslusjóðs Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni) og Starfsafls external link icon (starfsmennt Samtaka…
18. mars 2014
Fleiri kjarasamningar undirritaðir á næstunni
Um þessar mundir undirbýr SGS undirritun á nokkrum kjarasamningum, sem sambandið hefur umboð fyrir sín aðildarfélög. Samningarnir sem um ræðir eru:
  • Kjarasamningur SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
  • Kjarasamningur SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  • Kjarasamningur SGS og Landssambands smábátaeigenda.
  • Kjarasamningur SGS og Bændasamtaka Íslands.
  • Kjarasamningur SGS f.h. aðildarfélaga …
14. mars 2014
Verkfall framhaldsskólakennara
Nýlega samþykktu kennarar í ríkisreknum framhaldsskólum landsins að fara í verkfall 17. mars næstkomandi, hafi samningar við þá ekki náðst fyrir þann tíma. Félagsmenn í aðildarfélögum SGS er að finna innan framhaldsskólanna og mikilvægt er að það launafólk sé upplýst um stöðu sína ef til verkfalls framhaldsskólakennara kemur. Yfirvofandi verkfall tekur aðeins til þeirra sem eru félagar í Félagi f…
10. mars 2014
Nýir kauptaxtar
Í kjölfar þess að 13 félög innan SGS samþykktu nýjan kjarasamning sl. föstudag munu nýir kauptaxtar taka gildi í viðkomandi félögum. Taxtarnir gilda frá og með 1. febrúar 2014 til og með 28. febrúar 2015 og gilda þeir fyrir starfsmenn sem starfa á almennum vinnumarkaði. Samkvæmt nýjum kauptöxtum hækka laun um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Aðrir kjara…