25. nóvember 2015
Misrétti kynjanna mikið á vinnumarkaði
Í dag er haldið jafnréttisþing og skýrsla velferðarráðuneytisins um jafnréttismál á Íslandi er gefin út í tengslum við það. Sérstaklega er fjallað um kynjamisrétti á vinnumarkaði; bæði hvað varðar lárétt (skipting á milli starfsgreina) og lóðrétt (skipting á milli ábyrgðastaða). Kynbundinn launamunur fer minnkandi en illa gengur að loka bilinu. Árið 2008 mældist óskýrður launamunur kynjanna 7,8% e…
25. nóvember 2015
Atvinnuleysi mældist 3,8% í október
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,8%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnka…
24. nóvember 2015
Desemberuppbót 2015
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 201…
24. nóvember 2015
Áttin - ný vefgátt
Nú í nóvember opnaði ný vefgátt - Áttin, sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntasjóðum og fræðslustofnunum. Um er að ræða sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa lengi óskað eftir einfaldara kerfi og greiðari leið fyrir þau til að sækja í fræðslu- og starfsmenntasjóði. Þau fyrirtæki þar sem starfsmanna…
23. nóvember 2015
Fundur með Vinnueftirlitinu vegna vinnustaðaeftirlits
Fulltrúar Alþýðusambands Íslands áttu fund með Vinnueftirlitinu (VER) síðastliðinn föstudag til að ræða samstarf og upplýsingamiðlun á milli ASÍ og Vinnueftirlitisins vegna eftirlits með starfsaðstæðum erlends starfsfólks. Á fundinum kynntu fulltrúar Vinnueftirlitsins eftirlit stofnunarinnar með erlendu starfsfólki í mannvirkjagerð, fjölluðu um verkkaupaábyrgð, eftirlitsheimildir, þá þætti sem ei…