20. ágúst 2014
Starfsgreinasamband Íslands höfðar mál gegn Vísi hf.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur höfðað mál f.h. Framsýnar stéttarfélags gegn Vísi hf. fyrir Félagsdómi þar sem þess er krafist að viðurkennt verði að rekstrarstöðvun sem Vísir hf. boðaði þann 1. apríl sl. hafi falið í sér brot á kjarasamningi SGS og SA. Hin boðaða rekstrarstöðvun var sögð vera vegna hráefnisskorts og því var starfsfólk sent heim án launa eins og tilvitnað kjarasamningsákvæ…
19. ágúst 2014
Áhugaverðar ráðstefnur um vinnumál
Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2014, en Norræna ráðherranefndin samanstendur af tíu minni ráðherranefndum þar sem norrænir fagráðherrar funda reglulega um málefni sem tengjast þeirra starfssviði, þar á meðal vinnumál. Í tengslum við formennsku Íslands í ár verður í boði fjöldi áhugaverðra viðburða, m.a. um málefni vinnumarkaðarins. Meðal viðburða sem eru á döfinni má nef…
14. ágúst 2014
Ert þú á jafnaðarkaupi?
Starfsgreinasambandið fagnar þeirri miklu umræðu sem hefur verið um jafnaðarkaup í veitingageiranum sérstaklega. Stéttarfélögin hafa undanfarin ár vakið athygli ungs fólks á réttindum sínum, bæði með auglýsingum, bréfum, fjölmiðlaátökum og í gegnum samfélagsmiðla. Þetta virðist hafa borið árangur enda fjölmiðlaumræða mikil og stéttarfélög um allt land hafa varla undan að svara erindum, reikna út l…
22. júlí 2014
Samningurinn við sveitarfélögin samþykktur í atkvæðagreiðslu
Starfsfólk sveitarfélaga í 13 aðildarfélögum SGS hafa samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 1. júlí síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Já sögðu 78,84% en nei sögðu 21,16%. Alls voru 2.515 félagar á kjörskrá en 378 greiddu atkvæði (15% kjörsókn). Starfsgreinsambandið undirritaði kjarasamning í umboði eftirtalinna félaga: AFL – starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran…
21. júlí 2014
Atkvæðagreiðslu lýkur í kvöld!
Í kvöld á miðnætti mánudaginn 21. júlí  lýkur atkvæðagreiðslu um kjarasamning Starfsgreinasambandsins (SGS) við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan er sameiginleg fyrir 13 aðildarfélög SGS og fer fram rafrænt. Þeir sem hafa kosningarétt fengu bréf sent heim með kynningarefni, leiðbeiningum um kosningu ásamt lykilorði. Ef einhver vandræði eru skal hafa samband við viðkomandi stéttarfé…