7. mars 2014
Niðurstöður atkvæðagreiðslna vegna sáttatillögu
Talningu atkvæða vegna sáttatillögu ríkissáttasemjara, sem undirrituð var 20. febrúar síðastliðinn, er nú lokið. Af þeim 14 félögum innan SGS sem greiddu atkvæði um tillöguna samþykktu 13 félög hana en eitt þeirra felldi sáttatillöguna - Drífandi í Vestmannaeyjum. Að meðaltali var kjörsókn í aðildarfélögunum 20,3% og sveiflaðist hún talsvert milli félaga, allt frá 7,5% upp í 46,7% kjörsókn. &nb…
26. febrúar 2014
Atvinnuþátttaka mælist 79,3%
Samkvæmt nýjustu vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem gerð var í janúar sl, mældist atvinnuþátttaka hér á landi 79,3%. Það þýðir að af þeim 181.700 manns sem voru að jafnaði á vinnumarkaði voru 169.300 af þeim starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist því 6,8%. Atvinnuþátttaka Íslendinga hefur aukist um 0,7% ef miðað er við sama tíma fyrir ári síðan, en  á móti hefur at…
25. febrúar 2014
Upplýsingar um atkvæðagreiðslur
Þau félög sem undirrituðu nýjan kjarasamning í febrúar og leggja hann fyrir félagsmenn í atkvæðagreiðslu eru: Aldan í Skagafirði, Báran í Árborg, Drífandi í Vestmannaeyjum, Efling í Reykjavík, Eining-Iðja í Eyjafirðinum, Framsýn á Húsavík, Samstaða á Blönduósi, Stéttarfélag Vesturlands í Borgarfirðinum, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Hlíf í Hafnarfirði, Verkalýðs- og sjómanna…
24. febrúar 2014
Allt um kjarasamningana
Í desember sl. voru samningar undirritaðir og samþykktir af þessum félögum: Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Afl-Starfsgreinafélag, Verkalýðsfélag Suðurlands og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis. Desember-samningarnir fólust í stuttu máli í eftirfarandi atriðum:
  • 1. janúar 2014 hækkuðu laun um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað…
20. febrúar 2014
13 félög innan SGS hafa undirritað nýjan kjarasamning
Í atkvæðagreiðslu um kjarasamningana sem undirritaðir voru í desember felldu 14 félög af 19 félögum SGS samningana. Þessi félög hafa síðan átt í áframhaldandi viðræðum við SA nokkur saman eða hvert í sínu lagi og hafa þau nú undirritað sáttatillögu ríkissáttasemjara. Með samningnum fær launafólk þær hækkanir sem um var samið í desember-samningnum, þ.e. einn launaflokk og 8.000 króna hækkun auk 2,…