17. september 2014
Þriðja þing ASÍ-UNG vel heppnað
Þriðja þing ASÍ-UNG var haldið 12. september sl. undir yfirskriftinni „Samfélag fyrir alla ... líka unga fólkið“. Þingið sóttu 36 þing- og aukafulltrúar og þar af komu 15 frá félögum innan Starfsgreinasambandsins. Á þinginu fjölluðu Henný Hinz og Ari Eldjárn m.a. um tekjuskiptingu í samfélaginu og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Mikil áhersla var lögð á málefnavinnu á þinginu og skilaði sú…
10. september 2014
Formannafundur afstaðinn
Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hittust á tveggja daga fundi á Ísafirði dagana 9. og 10. september. Til umfjöllunar voru hefðbundin mál  og dagskrá vetrarins en auk þess var sérstaklega fjallað um vinnustaðaeftirlit og mansal á vinnumarkaði. Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ fjallaði um verkefni sambandsins og stéttarfélaga í vinnustaðaeftirliti og kom fram…
9. september 2014
Formannafundur SGS mótmælir aukinni misskiptingu
Formannafundur Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega þeirri herferð sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og öðru tekjulágu fólki og birtist í nýju fjárlagafrumvarpi. Skerðing á bótatíma atvinnulausra er afturhvarf til fortíðar. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk. Formenn og varaformenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem nú f…
5. september 2014
Formannafundur SGS á Ísafirði
Dagana 9. og 10. september heldur Starfsgreinasambandið formannafund og verður hann að þessu sinni haldinn á Hótel Ísafirði. Um er að ræða útvíkkaðan fund, þ.e.a.s. til fundarins eru boðaðir formenn aðildarfélaga SGS auk eins fulltrúa til viðbótar frá hverju félagi.  Fjölmörg mál eru á dagsská fundarins, s.s. umræða um kjaramál, framsaga um vinnustaðaskírteini og vinnustaðaeftirlit auk þess sem þi…
4. september 2014
Forstjórar með tugföld árslaun á við verkafólk
Alþýðusambands Íslands sendi frá sér athyglisverða samantekt í gær þar sem ofurlaun íslenskra forstjóra eru sett í samhengi við laun almennings í landinu. Það er skemmst frá því að segja að ný athugun ASÍ sýnir að nokkrir forstjórar fyrirtækja á hlutabréfamarkaði eru með tugföld árslaun verkafólks. Í samantektinni eru kjör æðstu stjórnenda borin saman við aðra hópa. Til að gera það reiknaði ASÍ sv…