27. ágúst 2014
Jafnrétti í 40 ár
Norðurlöndin hafa átt með sér samstarf um jafnréttismál í 40 ár og fögnuðu því með ráðstefnu í Reykjavík í gær (þriðjudaginn 26. ágúst). Meðal þátttakenda á ráðstefnunni voru Eygló Harðardóttir velferðarráðherra, frú Vigdís Finnbogadóttir og Margot Wallström, sem unnið hefur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi gegn konum í stríðsátökum. Hún hefur einnig gegnt ráðherradómi í Svíþjóð.
Á ráð…
25. ágúst 2014
Annasamur vetur framundan
Starfsgreinasamband Íslands hefur að undanförnu skipulagt vetrarstarfið, en ljóst er að verkefnin sem bíða eru bæði mörg og krefjandi. Þar mun eðli málsins samkvæmt mæða mest á gerð nýrra kjarasamninga, en kjarasamningar SGS og Samtaka atvinnulífsins verða lausir þann 28. febrúar næstkomandi, sem og allir sérkjarasamningar sambandins. Þá renna samningar SGS við ríkið og Samband íslenskra sveitarfé…
20. ágúst 2014
Starfsgreinasamband Íslands höfðar mál gegn Vísi hf.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur höfðað mál f.h. Framsýnar stéttarfélags gegn Vísi hf. fyrir Félagsdómi þar sem þess er krafist að viðurkennt verði að rekstrarstöðvun sem Vísir hf. boðaði þann 1. apríl sl. hafi falið í sér brot á kjarasamningi SGS og SA. Hin boðaða rekstrarstöðvun var sögð vera vegna hráefnisskorts og því var starfsfólk sent heim án launa eins og tilvitnað kjarasamningsákvæ…
19. ágúst 2014
Áhugaverðar ráðstefnur um vinnumál
Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2014, en Norræna ráðherranefndin samanstendur af tíu minni ráðherranefndum þar sem norrænir fagráðherrar funda reglulega um málefni sem tengjast þeirra starfssviði, þar á meðal vinnumál. Í tengslum við formennsku Íslands í ár verður í boði fjöldi áhugaverðra viðburða, m.a. um málefni vinnumarkaðarins. Meðal viðburða sem eru á döfinni má nef…
14. ágúst 2014
Ert þú á jafnaðarkaupi?
Starfsgreinasambandið fagnar þeirri miklu umræðu sem hefur verið um jafnaðarkaup í veitingageiranum sérstaklega. Stéttarfélögin hafa undanfarin ár vakið athygli ungs fólks á réttindum sínum, bæði með auglýsingum, bréfum, fjölmiðlaátökum og í gegnum samfélagsmiðla. Þetta virðist hafa borið árangur enda fjölmiðlaumræða mikil og stéttarfélög um allt land hafa varla undan að svara erindum, reikna út l…