22. janúar 2013
SGS og NPA miðstöðin gera kjarasamning
Starfsgreinasambandið og NPA miðstöðin hafa undirritað kjarasamning sem tekur gildi 1. febrúar næstkomandi. NPA miðstöðin hefur það að markmiði að veita fötluðu fólki á öllum aldri stuðning til að nýta notendastýrða persónulega aðstoð. Þannig hefur miðstöðin til dæmis aðstoðað við ráðgjöf við starfsmannamál, ráðningar, launa- og skipulagsmál og fleira. NPA verkefnið er tilraunaverkefni sem byggir…
21. janúar 2013
Samningstímabilið stytt og launahækkanir 1. febrúar tryggðar
Samninganefnd Alþýðusambands Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa undirritað samkomulag um að stytta samningstímabil núverandi kjarasamninga um tvo mánuði þannig að þeir renna út 30. nóvember. Með þessu móti koma umsamdar launahækkanir til framkvæmda 1. febrúar næstkomandi en vinnu við næstu kjarasamninga er fram á haustið. Þetta er í samræmi við niðurstöðu samninganefndar Starfsgreinasambands…
17. janúar 2013
Samninganefnd SGS samþykkir drög að samkomulagi
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands kom saman til fundar í vikunni til að fjalla um drög að því samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú liggur fyrir. Það var skýr niðurstaða fundarins að samþykkja samkomulagið sem gerir ráð fyrir styttingu samningstímans til 30. nóvember 2013, hækkun iðgjalda til fræðslumála auk fleiri þátta. Með þessu móti koma umsamdar launahækkanir til fram…
15. janúar 2013
Formenn SGS funda
Í dag heldur Starfsgreinasambandið formannafund sinn í Guðrúnartúni 1 í Reykjavík. Helstu áherslur fundarins verða starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og staða kjarasamninga. Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK mun fara yfir starfsemi og markmið VIRK og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mun fara yfir stöðu kjarasamninga ásamt formönnum. Eftir formannafundinn mun samninganefnd SGS hittast…
8. janúar 2013
Lágmarkslaunin og tölurnar
Í aðdraganda kjarasamninga er rýnt í fjölda gagna og talna. Samtök atvinnulífsins kjósa að rýna í lágmarkslaun og færa fyrir því rök að þau hafi hækkað í kjarasamningum umfram önnur laun síðustu átta ár. Þetta er rétt hjá Samtökum atvinnulífsins en ef samtökin ætla að gera því skóna að kjarasamningsbundin lágmarkslaun séu orðin nógu há þarf að bæta við ýmsum tölum og viðmiðum. Fyrst ber að nef…