29. mars 2014
SGS ályktar um aðstöðumun og gjaldtöku
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands samþykkti tvær ályktanir í kjölfar formannafundar fimmtudaginn 27. mars síðastliðinn. Fundurinn hafnar gjaldtöku við náttúruperlur og lýsir yfir miklum áhyggjum af þeim aðstöðumun sem fólk býr við sem á langt að sækja grunnþjónustu. Starfsgreinasambandið hafnar gjaldtöku við náttúruperlur Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, haldinn í Reykjavík…
28. mars 2014
Nýr kjarasamningur fyrir beitningarmenn
Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband Smábátaeigenda hafa undirritað nýjan kjarasamning vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi. Samningurinn gildir jafnframt fyrir starfsmenn sem starfa við netavinnu. Aðalatriði samningsins er hækkun kauptryggingar í 236.095 krónur og eingreiðsla uppá 14.600 krónur til þeirra sem voru í fullu starfi í janúar 2014. Desember- og orlo…
21. mars 2014
Vel heppnuðum fræðsludögum lokið
Fyrr í dag lauk vel heppnuðum fræðsludögum sem Starfsgreinasambandið stóð fyrir. Viðburðinn sótti starfsfólk sem starfar á skrifstofum aðildarfélaga SGS, en alls mættu 22 fulltrúar frá 10 félögum. Dagskráin hófst um hádegisbil í gær með gagnlegu námskeiði frá Þekkingarmiðlun. Á námskeiðinu, sem bar fyrirsögnina "Að eiga við pirring og óánægju", fór leiðbeinandinn Eyþór Eðvarðsson yfir ýmis erfið m…
19. mars 2014
Nýr kjarasamningur við NPA miðstöðina
Þann 19. mars 2014 undirritaði Starfsgreinasamband Ísland nýjan kjarasamning við NPA miðstöðina, vegna aðstoðarfólks fatlaðs fólks. Samningurinn kemur til viðbótar kjarasamningi SGS og NPA miðstöðvarinnar frá 30. nóvember 2013 og tekur mið af breytingum sem gerðar voru á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru 21. desember 2013 ásamt sáttatillögu ríkissáttasemjara frá 20. febr…
19. mars 2014
Nýr kjarasamningur við Bændasamtök Íslands vegna starfsfólks í landbúnaði
Þann 18. mars 2014 var undirritaður nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk sem vinnur almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Auk þess falla ráðskonur/matráðar á bændabýlum undir samninginn. Starfsmenn, sem starfa við ferðaþjónustu í smærri stíl geta einnig fallið undir gildissvið samningsins enda sé það samþykkt af hálfu viðkomandi stéttarfélags. Helstu atriði hins nýja samnings er að byrjunarlaun er…