15. mars 2016
Nýr samningur við Bændasamtök Íslands
Starfsgreinasamband Íslands undirritaði í dag nýjan kjarasamning við Bændasamtök Íslands um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf. Auk þess falla ráðskonur/matráðar á bændabýlum undir samninginn. Samningurinn nær ekki til þeirra starfsmanna sem starfa við ferðaþjónustu eða aðra starfsemi sem fellur ekki undir ofangreinda skilgreiningu. Starfsmenn, sem starfa við ferðaþjónustu…
15. mars 2016
Fræðsludagur félagsliða
Þann 30. mars næstkomandi verður hinn árlegi fræðsludagur félagsliða haldinn, en SGS og Félag íslenskra félagsliða halda daginn í sameiningu og er fræðslan opin félagsliðum um allt land óháð stéttarfélagi. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks fyrir 20. mars næstkomandi í gegnum netfangið drifa@sgs.is. Félagsliðar um allt land eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fræðast og ekki síst h…
11. mars 2016
Bann við núlltímasamningum
Barátta launafólks er erfið í mörgum löndum og víða þar sem vinnulöggjöf og verkalýðshreyfing er veik hefur öryggisleysi á vinnumarkaði aukist. Eitt helst áhyggjuefni í Evrópu og víða er staða ungs fólks sem fær einungis tímabundnar ráðningar, er íhlaupafólk og jafnvel með svokallaða núlltímasamninga, þar sem starfshlutfallið er sveigjanlegt eftir því hvaða vinna býðst þennan og þennan daginn. Þet…
10. mars 2016
ASÍ 100 ára
Verkalýðshreyfingin er ein öflugasta félagshreyfing þjóðarinnar. Flestir vita af hreyfingunni, margir njóta þjónustu hennar, sýna skilning á hlutverki hennar en þeir eru líklega fleiri sem gera sér ekki grein fyrir hversu stórt hlutverk hennar er í sögu þjóðarinnar síðustu 100 árin. Þess vegna er mikilvægt að rifja upp söguna og vekja athygli á framlagi verkalýðshreyfingarinnar til mótunar íslensk…
8. mars 2016
Bæklingur um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum
Allir eiga rétt á því að starfsumhverfi þeirra einkennist af gagnkvæmri virðingu í samskiptum. Í því felst að starfsmenn eiga rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað. Nú er kominn út bæklingur þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Að bæklingnum standa ASÍ, …